Fotbolti.net
13.11.08 - 14:05
Magnús Már Einarsson

Ólafur Páll Snorrason í Val (Staðfest)

Ólafur Páll Snorrason í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Ólafur Páll Snorrason leikmaður Fjölnis hefur ákveðið að ganga í raðir Valsmanna en hann mun gera þriggja ára samning við félagið síðar í dag.
Ólafur Páll staðfestir þetta í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér á heimasíðu Fjölnis.

Hann er annar leikmaðurinn sem fer frá Fjölni í Val í dag en í morgun greindi Pétur Georg Markan frá því að hann hefði ákveðið að ganga til liðs við Valsmenn.

Ólafur Páll átti mjög gott tímabili með Fjölni í Landsbankadeildinni í sumar. Hann spilaði 19 af leikjum liðsins í deildinni og skoraði í þeim sex mörk.

Þessi 26 ára gamli leikmaður þekkir til hjá Val eftir að hafa leikið með liðinu á sínum tíma en auk þess hefur verið hjá Stjörnunni, Val, Fylki og FH hér á landi auk þess sem hann var hjá Bolton á Englandi í eitt ár um aldamótin.

Valsarar hafa styrkt sig rækilega fyrir komandi tímabil en með tilkomu Ólafs Páls og Péturs hefur liðið fengið fimm leikmenn frá því að tímabilinu lauk. Haraldur Björnsson kom einnig til Vals frá Hearts, Reynir Leósson kom frá Fram og Ian Jeffs frá Fylki.
Yfirlýsing Ólafs Páls á heimasíðu Fjölnis

Ágætu Fjölnismenn.

Knattspyrnufélagið Valur hefur boðið mér samning til næstu þriggja ára sem ég hyggst ganga að með formlegum hætti í dag.Það er gríðarlega erfið ákvörðun að hverfa frá Fjölni á þessum mesta uppgangstíma í sögu félagsins en ég vil við þessi tímamót fá að nota tækifærið til þess að þakka fyrir síðasta eitt og hálfa árið sem ég hef verið í herbúðum Fjölnis. Þetta hefur verið mjög ánægjulegur tími fyrir mig og mér mikill heiður að fá að spila með Fjölni í fyrsta skipti í sögu félagsins í efstu deild. Það að fá að taka þátt í að koma uppeldisfélagi sínu í röð hinna bestu er ómetanleg reynsla fyrir mig.

Ég vil þakka öllum leikmönnum, þjálfurum, aðstandendum fyrir þann hlýhug og skilning sem mér hefur verið sýnt. Síðast en ekki síst þakka ég stuðningsmannaklúbbnum Kára fyrir tímann. Á allan hátt er það óskiljanlegt að Kára-menn urðu ekki fyrir valinu bestu stuðningsmenn sumarsins. Að þessu sögðu óska ég öllum Fjölnismönnum velfarnaðar í leik og starfi í ókominni framtíð.

Bestu kveðjur

Ólafur Páll Snorrason

Heimild: Heimasíða Fjölnis

Ólafur Páll Snorrason í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.