Fotbolti.net
13.11.26 - 13:45
Ívan Guðjón Baldursson

Pochettino tólfti þjálfarinn síðan Sir Alex

Pochettino tólfti þjálfarinn síðan Sir Alex
Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino verður eftir landsleikjahléð hvorki meira né minna heldur en tólfti þjálfarinn sem stýrir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni frá tímabilinu 2013-14.
Frá endurreisn til nýrrar krísu - Hvað er eiginlega að Manchester United?
TENGT EFNI

Frá endurreisn til nýrrar krísu - Hvað er eiginlega að Manchester United?

Á sama tíma hafa einungis Chelsea og Crystal Palace skipt oftar um þjálfara, en Man Utd hefur gengið herfilega að finna arftaka fyrir Sir Alex Ferguson rétt eins og Chelsea að finna arftaka fyrir José Mourinho.

Pochettino tekur við Man Utd eftir að hafa áður stýrt Southampton, Tottenham og Chelsea í enska boltanum. Argentínski þjálfarinn tekur fimm starfsmenn með sér til Manchester sem hafa fylgt honum á undanförnum árum. Jesús Pérez og Miguel D'Agostino verða aðstoðarþjálfarar, Toni Jiménez markmannsþjálfari, Silvia Tuya ástandsþjálfari og Sebastiano Pochettino, sem er sonur Mauricio og verður yfir greiningardeild Rauðu djöflanna.

Pochettino byrjar á erfiðum útileik gegn Liverpool beint eftir landsleikjahlé og eftir það munu lærlingar hans heimsækja Sporting til Portúgal og spila svo við Brentford, Coventry og Newcastle United í úrvalsdeildinni. Fyrsti heimaleikurinn er gegn Brentford 28. nóvember.

Argentínumaðurinn er ráðinn eftir að hafa gert flotta hluti við stjórnvöl bandaríska landsliðsins. Hann hefur störf í Manchester þann 18. nóvember, eftir að Bandaríkin spila tvo leiki við Haítí í Þjóðadeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.