13.12.09 - 12:24
Hafliði Breiðfjörð
Málfríður Erna Sigurðardóttir snýr aftur í lið Vals (Staðfest)

Málfríður Erna spilar með Val á næsta ári.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir keppni næsta árs í kvennaboltanum því nú er ljóst að Málfríður Erna Sigurðardóttir mun spila með liðinu næsta sumar.
Málfríður Erna lék síðast með Val sumarið 2008 en tók sér barneignarfrí síðasta sumar. Hún hefur hafið æfingar með Val að nýju.
Hún spilaði í miðvarðarstöðunni í æfingaleik með Val gegn Selfoss í gærkvöld og stóð sig virkilega vel og sýndi að hún hefur engu gleymt.
Hún er 24 ára gömul og hefur allan sinn feril leikið með Val. Hún hefur leikið 117 leiki með félaginu í efstu deild og skorað í þeim 21 mark.
Hún skoraði sex mörk í 17 leikjum með Val í Landsbankadeildinni sumarið 2008 og lék auk þess þrjá bikarleiki og í Evrópukeppninni með liðinu.
Hún hefur leikið 18 A-landsleiki fyrri Íslands hönd auk þess að hafa áður leikið með U17, U19 og U21 árs landsliðunum.