13.12.09 - 11:30
Hafliði Breiðfjörð
Hörður S. Bjarnason í Þrótt (Staðfest)

Hörður í sjálfheldu í leik með Víkingi í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi ár í 1. deild karla því bakvörðurinn Hörður Sigurjón Bjarnason er genginn til liðs við félagið og skrifaði undir tveggja ára samning nú um helgina.
Frá þessu var greint á vef stuðningsmanna Þróttar, Köttarar.net, í gær en Hörður hefur æft með liðinu upp á síðkastið og spilaði með þeim æfingaleik gegn Aftureldingu í gærmorgun.
Hörður Sigurjón skoraði tvö marka Þróttar í þeim leik en hann spilar ýmist í vinstri bakvarðar, eða vinstri kantstöðunni.
Hörður hefur ekki spilað af krafti síðan sumarið 2007 er hann lék með Víkingi í efstu deild og spilaði 14 leiki.
Árið 2008 spilaði hann þrjá leiki með Víkingi í 1. deild og tvo með Breiðablik í þeirri efstu en í fyrra fór hann alla leið niður í 3. deild og lék þar fjóra leiki með Berserkjum og skoraði eitt mark.

Heimild: Köttarar.net