Fotbolti.net
13.12.09 - 12:41
Hafliði Breiðfjörð

Viktor Guðnason í Njarðvík - Almar framlengir (Staðfest)

Guðmundur Rúnar stjórnarmaður í Njarðvík ásamt Viktori Guðnasyni.

Guðmundur Rúnar stjórnarmaður í Njarðvík ásamt Viktori Guðnasyni.

Canon

Mynd: Vefur Njarðvíkur

Njarðvíkingar hafa fengið fínan liðsstyrk fyrir baráttuna í 1. deild karla næsta sumar því Viktor Guðnason er genginn til liðs við félagið frá nágrannaliðinu, Keflavík.
Njarðvíkingar tilkynntu þetta um helgina en Viktor sem er tvítugur spilaði tvo leiki með Keflavík í Pepsi-deildinni í sumar. Hann hafði einnig verið hluta tímabilsins á láni hjá Víkingi Ólafsvík þar sem hann lék fimm leiki í 1. deildinni.

Viktor hefur í heildina leikið 10 meistaraflokksleiki með Keflavík og Víkingi Ólafsvík í deild og bikar og hefur skorað í þeim tvö mörk. Hann hefur æft með Njarðvík síðan í haust.

Njarðvík tilkynnti einnig um helgina að markvörðurinn Almar Elí Færseth hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Almar lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Njarðvík í lokaumferðinni í 2. deild í sumar. Þá kom hann inná eftir einnar mínútu leik sem var úrslitaleikur gegn Reyni Sandgerði um sæti í 1. deild. Hans fyrsta verk þar, og fyrsta snerting í meistaraflokksleikk, var að verja vítaspyrnu.

Hann kemur til með að halda áfram að veita Ingvari Jónssyni samkeppni um markmannstöðuna hjá Njarðvík en þegar er ljóst að Almar leikur leikinn gegn Leikni í1. umferðinni í maí því Ingvar tekur þá út leikbann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.