Fotbolti.net
14.01.05 - 06:13
Magnús Már Einarsson

Portillo aftur til Real Madrid (Staðfest)

Portillo aftur til Real Madrid (Staðfest)
Canon
Real Madrid hefur fengið sóknarmanninn Javier Portillo til baka úr láni frá ítalska liðinu Fiorentina. Portillo sem er 22 ára hefur verið í láni hjá Fiorentina alla þessa leiktíð en þar sem að Fernando Morientes er farinn til Liverpool frá Real Madrid hefur spænska liðið ákveðið að fá Portillo aftur til sín.
Portillo á mörg markamet í unglingaliðum Real Madrid en þar skoraði hann alls 726 mörk á átta tímabilum en hann náði aldrei að vinna sér fast sæti hjá Real Madrid áður en að hann fór til Fiorentina.

Á Ítalíu náði hann heldur ekki að vinna sér öruggt sæti í byrjunarliði og nú er hann kominn aftur til Madrid þar sem hann verður án efa fjórði í goggunaröð framherja hjá Real á eftir þeim Ronaldo, Raul og Michael Owen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.