14.01.05 - 11:10
Hafliði Breiðfjörð
Jón Gunnar Gunnarsson í Þrótt (Staðfest)


Mynd: www.trottur.is


Mynd: www.trottur.is
Jón Gunnar Gunnarsson er genginn til liðs við nýliða efstu deildar, Þrótt og fékk leikheimild með sínu nýja félagi í gær. Jón Gunnar hóf síðasta tímabil með Haukum í 1. deildinni en gekk svo í raðir Fram þegar nokkuð var liðið á mótið og lék með liðinu út leiktíðina. Hann er 29 ára gamall vinstri kantmaður og er alinn upp hjá FH en hefur einnig spilað hluta úr leiktíð með Val.
