Fotbolti.net
14.01.05 - 14:40
Magnús Már Einarsson

Ívar Jónsson til HK (Staðfest)

Jóhann Björnsson er búinn að framlengja við HK.

Jóhann Björnsson er búinn að framlengja við HK.

Canon

Mynd: HK.is

HK hefur fengið Ívar Jónsson frá Breiðablik. Þessi 29 ára miðjumaður hefur áður leikið með HK og er á meðal leikjahæstu leikmanna liðsins frá upphafi en hann lék ekkert með Breiðablik síðasta sumar.
Varnarmaðurinn sterki Jóhann Björnsson hefur gert nýjan tveggja ára samning við HK. Jóhann sem er 19 ára lék alla 18 leiki HK í fyrstu deild síðastliðið sumar en fyrri samningur hans við liðið átti að renna út næsta haust.

Miðjumaðurinn Finnur Ólafsson hefur einnig gert nýjan tveggja ára samning við HK. Finnur sem er tvítugur spilaði alla leiki HK í fyrstu deildinni síðastliðið sumar og skoraði í þeim eitt mark. Jóhann Ingi Jóhannsson varnar og miðjumaður hefur einnig gert nýjan tveggja ára samning við HK. Hann missti af nánast öllum leikjum liðsins í fyrra vegna meiðsla og lék aðeins einn leik en Jóhann var kosinn knattspyrnumaður ársins hjá HK árið 2003.

Framherjinn ungi Bjarki Már Sigvaldason hefur gert tveggja ára samning við HK en þetta er fyrsti samningur hans við félagið. Bjarki sem er 17 ára skoraði tvö mörk í sautján leikjum með HK í fyrstu deild síðastliðið sumar.

Sjá nánar:
Hin Hliðin á Jóhanni Björnssyni

Heimildir: Heimasíða HK
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.