Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 14. janúar 2021 14:44
Elvar Geir Magnússon
Pétur Viðars áfram með FH
Pétur Viðarsson framlengir við FH.
Pétur Viðarsson framlengir við FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Pétur Viðarsson hefur framlengt samning sinn við FH út þetta ár. Pétur, sem er 32 ára, er einn af sigursælustu leikmönnum FH.

Árið 2019 var Pétur valinn í úrvalslið áratugarins í útvarpsþættinum Fótbolti.net.

Pétur spilaði fjórtán leiki í deild og bikar á síðustu leiktíð. Hann hefur spilað 251 leik fyrir FH á ferlinum og skorað í þeim 12 mörk.

„Það eru spennandi tímar framundan hjá FH. Það er sterkt FH-DNA í mér og með nýjum þjálfurum og nýju fólki skynja ég hungur. Mikið af ungum leikmönnum sem geta náð langt og við erum komnir með lið sem er vel samkeppnishæft. Það er mikil tilhlökkun í mér að byrja knattspyrnusumarið 2021," segir Pétur.

Logi Ólafsson stýrir FH á komandi tímabili en aðstoðarmaður hans er Davíð Þór Viðarsson. FH hafnaði í öðru sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðasta ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner