Fotbolti.net
14.02.10 - 07:47
Hafliði Breiðfjörð

Chris Iwelumo til Bristol City (Staðfest)

Chris Iwelumo.

Chris Iwelumo.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Bristol City gekk í gær frá samningum um að fá Chris Iwelumo á láni frá enska úrvalsdeildarfélaginu Wolves.
Iwelumo sem er 31 árs gamall skosku r landsliðsmaður hjálpaði Wolves að komast upp úr Championship deildinni á síðustu leiktíð eftir að hafa komið frá Charlton.

,,Hann mun koma með mikla reynslu í framlínuna okkar og getur látið til sín taka þarna frammi líka,\" sagði Gary Johnson stjóri Bristol.

,,Við fengum hann til að byrja með í mánuð.\"

Iwelumo hóf feril sinn hjá St. Mirren áður en hann fór til Aarhus í Danmörku. Hann hefur einnig spilað með Stoke og Colchester og kom hingað til lands með Alemania Achen í Evrópukeppninni fyrir nokkrum árum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.