14.03.12 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Gunnlaugur Hlynur Birgisson í Club Brugge (Staðfest)

Mynd: Kristján Bernburg

Mynd: Kristján Bernburg
Gunnlaugur Hlynur Birgisson, leikmaður Breiðabliks, mun ganga í raðir Club Brugge þann 1. júlí næstkomandi.
Gunnlaugur fór til Club Brugge á reynslu í tvær vikur á síðasta ári og honum var síðan boðið að koma til félagsins í tvo mánuði á dögunum.

Þessi sextán ára gamli miðjumaður hefur verið við æfingar hjá Club Brugge frá 15. janúar en hann er nú á heimleið.
Í sumar mun Gunnlaugur síðan fara í akademíu Club Brugg en félagið ætlar að bjóða honum atvinnumannasamning í desember.
Gunnlaugur er í U17 ára landsliði Íslands sem er að fara að keppa í milliriðli fyrir EM í næstu viku.