Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 14. mars 2020 18:45
Ívan Guðjón Baldursson
Hvíta-Rússland: Willum spilaði vel er BATE komst í undanúrslit
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
BATE Borisov 3 - 2 Dinamo Minsk (5-3 samanlagt)
0-1 A. Rios ('10)
1-1 D. Baga ('21)
1-2 A. Rios ('43)
2-2 E. Filipenko ('45)
3-2 M. Skavysh ('84)

Willum Þór Willumsson lék allan leikinn í liði BATE Borisov sem sigraði Dinamo Minsk í bikarnum í Hvíta-Rússlandi.

BATE vann 3-2 á heimavelli eftir að hafa unnið fyrri leikinn á útivelli. Samanlagt 5-3 sigur.

Willum Þór átti stóran þátt í fyrsta marki BATE í leiknum og þótti spila mjög vel.

Heimamenn í BATE lentu tvisvar undir í fyrri hálfleik en staðan var jöfn 2-2 í leikhlé. Heimamenn skoruðu eina markið í síðari hálfleik og stóðu uppi sem sigurvegarar.

BATE er komið í undanúrslit bikarsins ásamt Slavia Mozyr, Shakhtyor Soligorsk og sigurvegaranum úr viðureign Isloch Minsk gegn Brest.
Athugasemdir
banner
banner