Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. mars 2020 06:30
Ívan Guðjón Baldursson
Leikmenn Wuhan Zall snúa aftur heim frá Spáni
Mynd: Getty Images
L'Equipe greinir frá því að leikmenn Wuhan Zall séu á heimleið eftir að hafa verið fastir á Spáni í æfingaferð.

Kórónaveiran breiddist fyrst út í Wuhan í Kína og voru tugir þúsunda sýktir. Yfirvöld þar í landi brugðust skjótt við og eru svo gott sem búin að útrýma veirunni í Wuhan, þar sem fólki er ekki hleypt út án viðeigandi grímu.

Staðan í Wuhan er orðin öruggari heldur en á mörgum stöðum í Evrópu, þar á meðal Spáni, og halda leikmenn því aftur heim.

Evrópski knattspyrnuheimurinn er stopp um þessar mundir þar sem búið er að fresta leikjum í öllum helstu keppnum Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner