Fotbolti.net
14.04.12 - 07:00
Daníel Freyr Jónsson

Elías Örn í Árborg (Staðfest)

Elías Örn í Árborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss hefur lánað markvörðinn Elías Örn Einarsson til Knattspyrnufélags Árborgar í 3. deildinni.
Elías hefur leikið með Selfyssingum frá árinu 2001 og á að baki 175 leiki með liðinu. Hann hefur þó mikið vermt varamannabekkin undanfarin sumur þar sem Jóhann Ólafur Sigurðsson hefur verið aðalmarkvörður liðsins.



,,Það er gríðarlegur fengur fyrir okkur að fá Elías í hópinn. Hann kemur með reynslu og yfirvegun í vörnina hjá okkur,\" sagði Guðmundar Garðar Sigfússon, þjálfari Árborgar, við fréttamiðilinn Sunnlenska.is



Árborg mun leika í A-riðli 3. deildar í sumar eftir að hafa fallið úr 2. deild í fyrra.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.