Fotbolti.net
14.05.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Jón Björgvin Hermannsson í Hvöt (Staðfest)

Jón Björgvin á flugi.

Jón Björgvin á flugi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Jón Björgvin Hermannsson hefur tekið skóna af hillunni en hann hefur gengið til liðs við Hvöt.
Jón Björgvin lék fimmtán leiki með Víkingi í efstu deild árið 2007 en í fyrra tók hann sér frí frá fótboltanum.

Frá 2002-2006 hafði Jón Björgvin leikið með Fylkismönnum í efstu deild en hann er uppalinn þar.

Þessi 29 ára gamli leikmaður var einnig í láni hjá Víkingi sumarið 2003 og þá hefur hann einnig leikið með Aftureldingu á ferlinum.

Hvöt mætir ÍH/HV í fyrstu umferðinn í annarri deildinni en sá leikur fer fram á Blönduósi á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.