14.05.09 - 18:09
Magnús Már Einarsson
Brynjar Orri og Aron í Leikni á láni frá KR (Staðfest)

Brynjar Orri fagnar marki með Víkingi síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Gunnlaugur Júlíusson

Leiknir R. hefur fengið Brynjar Orra Bjarnason og Aron Inga Kristinsson á láni frá KR.
Brynjar Orri var í láni hjá Víkingi R. síðastliðið sumar þar sem hann skoraði þrjú mörk í átján leikjum í 1.deildinni og Visa-bikarnum.
Þessi 21 árs gamli framherji er bróðir Theódórs Elmars Bjarnasonar, leikmanns Lyn og íslenska landsliðsins.
Aron er 19 ára gamall vinstri bakvörður en hann lék þónokkuð með KR á undirbúningstímabilinu. Hann lék upp yngri flokkana með KS en fór síðan til KA áður en hann hélt í KR árið 2007.
Leikmennirnir gætu leikið sinn fyrsta leik með Leikni R. annað kvöld en þá sækir liðið Skagamenn heim.

Heimild: Heimasíða Leiknis