Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 14. maí 2022 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Styttan þykir líkari Kroos - „Ertu viss?"
Aguero fyrir framan styttuna.
Aguero fyrir framan styttuna.
Mynd: Getty Images
Í gær frumsýndi Manchester City nýja styttu af Sergio Aguero fyrir utan Etihad-völlinn.

Margir hafa hins vegar bent á það að styttan sé ekki lík Aguero, heldur öðrum fótboltamanni.

Á samfélagsmiðlum fór af stað umræða um að styttan væri líkari Toni Kroos, miðjumanni sem spilar fyrir Real Madrid.

Kroos ákvað sjálfur að blanda sér í umræðuna. „Ertu viss? svaraði Kroos við tísti þar sem bent var á að þarna væri stytta af Aguero.

Aguero er einn besti leikmaður sem hefur spilað fyrir Manchester City. Hans eftirminnilegasta mark var gegn QPR í uppbótartíma í lokaleik ensku úrvalsdeildarinnar 2012. Það mark færði City titilinn.

Hér fyrir neðan má sjá tíst Kroos.


Athugasemdir
banner
banner