14.07.08 - 15:59
Magnús Már Einarsson
Christian Poulsen til Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus hefur gengið frá kaupunum á danska miðjumanninum Christian Poulsen en hann kemur frá Sevilla á 9,75 milljónir evra.
Juventus hefur verið í leit að miðjumanni síðan að Antonio Nocerino fór til Palermo og nú er Poulsen kominn til félagsins.
Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur gert fjögurra ára samning við Juventus en koma hans þýðir að ólíklegra er að Xabi Alonso komi til félagsins frá Liverpool.
Þá eru kaup á Dejan Stankovic, leikmanni Inter, væntanlega úr sögunni en stuðningsmenn Juventus voru allt annað en ánægðir þegar að fréttist að félagið væri á eftir Stankovic.
Nokkrir stuðningsmenn Juventus hafa einnig lýst yfir óánægju með kaupin á Poulsen en þeim þykir leikstíll hans vera of svipaður leikstíl Mohamed Sissoko og vildu þeir frekar fá sókndjarfari miðjumann.

Heimild: Reuters