Fotbolti.net
14.07.08 - 16:05
Hafliði Breiðfjörð

Agnes Þóra Árnadóttir í Aftureldingu (Staðfest)

Agnes Þóra í leik með KR gegn Stjörnunni í sumar.

Agnes Þóra í leik með KR gegn Stjörnunni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kvennalið Aftureldingar fékk í dag mjög góðan liðsstyrk þegar Agnes Þóra Árnadóttir gekk í raðir félagsins frá KR. Agnes Þóra fær leikheimild með Aftureldingu á morgun og getur því spilað með liðinu gegn Breiðablik í 10. umferð Landsbankadeildarinnar annað kvöld.
Agnes Þóra Árnadóttir er tvítug og getur spilað sem varnarmaður eða framherji. Hún spilaði alla leiki KR á síðustu leiktíð en hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði KR á tímabilinu en hefur komið inná sem varamaður og valdið usla í framlínunni.

Hún lék 5 leiki með liðinu í deildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark, gegn Stjörnunni í 5. umferð deildarinnar.

Hún er fjórði leikmaðurinn sem Afturelding fær til sín í félagaskiptaglugganum því áður höfðu þær Andrea Ýr Gústavsdóttir, Anna Garðarsdóttir og María Rós Arngrímsdóttir komið frá Val.

Hún er annar leikmaðurinn sem fer frá KR í glugganum því áður hafði Lilja Dögg Valþórsdóttir gengið í raðir HK/Víkings.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.