14.07.08 - 17:10
Hafliði Breiðfjörð
Sigríður Björk Þorláksdóttir frá Breiðablik í Hött (Staðfest)

Sigríður Björk í leik með Breiðablik í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Guðmundsson

Sigríður Björk í leik með Breiðablik í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Guðmundsson

Sigríður Björk Þorláksdóttir er gengin í raðir 1. deildarliðs Hattar frá Breiðablik en hún er annar leikmaðurinn sem Breiðablik missir frá sér á nokkrum dögum því um helgina varð ljóst að Greta Mjöll Samúelsdóttir verður frá keppni út árið eftir að hafa sliitið krossband í hné.
Sigríður Björk sem er 31 árs hafði gengið í raðir Breiðabliks frá Hetti í febrúar en snýr nú aftur til Egilsstaða félagsins sem er á toppnum í B-riðli 1. deildar.
Hún lék sjö leiki með Breiðablik í Landsbankadeildinni í sumar, ýmist í byrjunarliði eða sem varamaður.
Hún hefur leikið með Stjörnunni, Haukum og Leikni Reykjavík auk Hattar og Breiðabliks.
Hún lék sjö leiki með Breiðablik í Landsbankadeildinni í sumar, ýmist í byrjunarliði eða sem varamaður.
Hún hefur leikið með Stjörnunni, Haukum og Leikni Reykjavík auk Hattar og Breiðabliks.
