14.08.08 - 14:29
Magnús Már Einarsson
Ben Thatcher til Ipswich (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ipswich Town hefur gert eins árs samning við varnarmanninn Ben Thatcher en möguleiki er á að framlengja samninginn síðar um annað ár.
Þessi fyrrum leikmaður Manchester City og Tottenham hefur verið í leit að félagi síðan hann yfirgaf Charlton í vor.
Thatcher, sem er 32 ára, var fyrr í sumar á reynslu hjá Ipswich og var með liðinu í æfingaferð í Belfast.
Hann fór einnig til West Ham á reynslu en fékk óblíðar móttökur hjá stuðningsmönnum liðsins sem bauluðu á leikmanninn þegar hann kom við sögu í æfingaleik gegn Villareal um síðustu helgi.
Thatcher hefur hins vegar samið við Ipswich og gæti leikið með liðinu þegar það mætir Jóhannesi Karli Guðjónssyni og félögum í Burnley um helgina.

Heimild: BBC