14.10.08 - 16:21
Hafliði Breiðfjörð
Lidija Stojkanovic til Fylkis (Staðfest)

Lidija Stojkanovic í rauðu í baráttunni í Landsbankadeildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lidija Stojkanovic sem var einn sterkasti varnarmaður Landsbankadeildar kvenna í sumar gekk í dag í raðir Fylkis frá HK/Víking og gerir tveggja ára samning við Árbæjarfélagið.
Þetta staðfesti Hafsteinn Steinsson í meistaraflokksráði Fylkis í samtali við Fótbolta.net í dag en hann sagði að Lidija muni auk þess að leika með liðinu verða aðstoðarþjálfari Björns Kristins Björnssonar með liðið.
Lidija Stojkanovic er 29 ára gamall serbneskur miðvörður sem gekk í raðir HK/Víkings sumarið 2005. Eftir að hafa spilað með liðinu í 1. deildinni í þrjú ár lék hún svo sitt fyrsta tímabil í Landsbankadeildinni í sumar og vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína.
Hún lék 16 leiki með HK/Víking í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark. HK/Víkingur féll úr deildinni í haust og leikur því í 1. deild að nýju á næsta ári.
Hún hefur verið að sækja þjálfaranámskeið og sem fyrr sagði verður hún aðstoðarþjálfari Björns.
Fylkir endaði í sjöunda sæti Landsbankadeildarinnar í sumar með 19 stig.