Fotbolti.net
14.10.08 - 19:47
Hafliði Breiðfjörð

Diego Tristan til West Ham (Staðfest)

Tristan við undirskriftina í kvöld.

Tristan við undirskriftina í kvöld.

Canon

Mynd: Vefsíða West Ham

West Ham staðfesti á vefsíðu sinni nú í kvöld að félagið hafi gert samning við spænska framherjann Diego Trisan um að ganga í raðir félagsins en hann var félagslaus og getur því gengið til liðs við félagið þegar í stað og verður fyrstu kaup Gianfranco Zola.
Tristan sem er 32 ára gamall á að baki 15 landsleiki fyrir hönd Spánar. Hann hefur verið félagslaus síðan hann yfirgaf Livorno í Serie A á Ítalíu í lok síðustu leiktíðar og er ákveðinn í að endurvekja feril sinn.

,,Ég er virkilega ánægður að vera kominn til West Ham. Þeir eru stórt félag og London er frábær borg,\" sagði Tristan við vefsíðu West HAm.

,,Ég vil sýna stuðningsmönnunum að ég geti skorað mörk og hjálpað liðinu til að fara upp á við í deildinni. Ég er spenntur yfir að vera hérna.\"

Tristan skrifaði undir í kvöld ásamt Scott Duxbury sem í kjölfarið flaug til Rómar til að ganga frá málum við umboðsmenn hans. Nokkur félög höfðu sýnt honum áhuga en hann valdi West Ham þar sem hann fær treyjunúmer 25. Tristan hrósaði Zola líka.

,,Stjórinn hefur eytt miklum tíma í að vinna með mér. Han hefur hjálpað mér mikið og ég vil þakka honum með því að skora mörg mörk og gera vel fyrir félagið. ég er mjög þakklátur stjóranum að gefa mér það tækifæri að spila hérna.\"

Heimild: Vefsíða West Ham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.