Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 14. október 2019 09:32
Magnús Már Einarsson
Rakitic og Mandzukic til Manchester United?
Powerade
Ivan Rakitic.
Ivan Rakitic.
Mynd: Getty Images
Ensku slúðurblöðin halda áfram að horfa á janúar gluggann og jafnvel alla leið til næsta sumars!



Tottenham ætlar að endurvekja áhuga sinn á Bruno Fernandes (25) miðjumanni Sporting Lisabon þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. (A Bola)

Manchester United þarf að borga tíu milljónir punda til að fá Mario Mandzukic (33) frá Juventus í janúar. Leikmaðurinn hefur sjálfur náð munnlegu samkomulagi við United. (Express)

Barcelona vill fá Kylian Mbappe (20) frá PSG eða Harry Kane (26) frá Tottenham frekar en Roberto Firmino (28) frá Liverpool. (Mundo Deportivo)

Umboðsmaður Jorginho (27) miðjumanns Chelsea hefur blásið á sögusagnir þess efnis að hann sé á leið aftur í Serie A. (Radio Sportiva)

Barcelona gæti selt Ivan Rakitic (31) í janúar en Manchester United er í viðræðum um kaup á honum. (Sport)

Andrea Radrizzani, eigandi Leeds, er að íhuga að selja félagið en þrír fjárfestar hafa áhuga. Þar á meðal er fjárfestingafélag frá Katar sem er í eigu Nasser Al-KHelaifi eiganda PSG. (Times)

Christian Eriksen (27) vill frekar fara frítt til Real Madrid næsta sumar heldur en að Tottenham selji hann í janúar. Eriksen getur þá fengið hærri upphæð fyrir undirskriftina. (Express)

Miðjumaðurinn efnilegi Declan Rice (19) segist vera ánægður hjá West Ham en hann segir að sögusagnir um Manchester United séu ekki réttar í augnablikinu. (Mirror)

Arsenal vill fá Joey Dawson (16) miðjumann Scunthorpe í ensku D-deildinni. Hann er frændi Michael Dawson sem var áður fyrirliði hjá Tottenham sem eru erkifjendur Arsenal. (Sun)

Victor Wanyama (28) miðjumaður Tottenham hefur verið orðaður við sitt gamla félag Celtic en hann er í leit að spiltíma. (Football.London)

Pierre van Hooijdonk, fyrrum framherji Nottingham Forest, segist hafa kallað Ron Atkinson "pöbba þjálfara" á tíma sínum hjá félaginu. (Guardian)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner