14.11.08 - 17:34
Hafliði Breiðfjörð
Lilja Dögg Valþórsdóttir í KR (Staðfest)

Lilja Dögg fagnar bikarmeistaratitli með KR 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gareth O\'Sullivan þjálfari KR.

Lilja Dögg Valþórsdóttir er gengin í raðir KR að nýju frá HK/Víkingi og hefur gert eins árs samning við vesturbæjarfélagið. Lilja Dögg þekkir vel til hjá KR því hún var þar frá 2005 fram í júlí í sumar er hún gekk í raðir HK/Víkings. Hún ákvað nú að ganga aftur í raðir KR.
,,HK/Víkingur féll náttúrulega og mér fannst henta mér betur að vera í efstu deild. Það voru tvö önnur lið sem höfðu samband við mig en Gareth [O\'Sullivan þjálfari KR] hafði samband og mér leist mjög vel á hann,\" sagði Lilja Dögg í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,Gareth er nýr þjálfari og það breytir töluvert miklu held ég. Þetta verður líka töluvert breytt lið því þær eru að fara einhverjar. Þetta hentar mér ágætlega. Mér fannst eins og ég eigi eftir að sýna KR hvað ég virkilega get því mér fannst ég ekki fá að sýna mínar réttu hliðar þegar ég var hjá KR svo það togaði pínulítið í mig að koma aftur.\"
Lilja hafði leikið fjóra leiki með KR í Landsbankadeildinni í sumar þegar hún fór til HK/Víkings á miðju sumri en þá vildi hún komast í lið þar sem hún fengi að spila meira.
,,Mér fannst ég ekki fá eins mikil tækifæri hjá KR og ég hefði viljað. Ég vildi bara fá að spila og ákvað að prófa að fara í lið sem var neðar í deildinni,\" sagði Lilja Dögg sem lenti svo í að meiðast illa skömmu eftir að hún kom til HK/Víkings og missti mikið úr þar.
,,Í rauninni varð þetta hálf misheppnað sumar hjá mér einhvern veginn í alla staði. Ég braut á mér olnbogann í öðrum leiknum með HK/Víkingi sem voru mikil vonbrigði,\" sagði hún. ,,Þá var ég farin að spila nýja stöðu sem var svolítið spennandi því ég spilaði frammi. En ég náði þremur leikjum undir lokin sem betur fer.\"
Hjá KR spilaði hún oftast í vörninni en var farin að spila í fremstu víglínu hjá HK/Víkingi þegar hún meiddist. Hún hefur spilað einn æfingaleik með KR núna í haust en þá spilaði hún bæði sem varnarmaður og á hægri kanti. En hvar býst hún við að spila undir stjórn Gareth O\'Sullivan?
,,Ég held að Gareth hugsi mig fyrst og fremst sem varnarmann en hann veit alveg af því að ég get spilað fleiri en eina stöðu,\" sagði hún en KR hefur misst fremstu víglínuna frá síðustu leiktíð því Hrefna Jóhannsdóttir fór í Stjörnuna, Fjóla Dröfn Friðriksdóttir í Hauka, Hólmfríður Magnúsdóttir er líklega á leið í atvinnumennsku og óvíst er hvort Olga Færseth haldi áfram.
,,Svona miðað við þessar breytingar sem verða á liðinu hugsa ég að ég sé hugsuð fyrst og fremst sem varnarmaður. Ólína [G. Viðarsdóttir] og Þórunn [Helga Jónsdóttir] hafa verið í vörninni en þær hafa líka spilað framar á vellinum svo það gæti verið það sem hann er að hugsa en það kemur frekar í ljós þegar liðið kemur saman,\" sagði Lilja Dögg að lokum.