Fotbolti.net
14.12.09 - 14:01
Magnús Már Einarsson

Henrik Larsson ráðinn þjálfari Landskrona (Staðfest)

Henrik Larsson ráðinn þjálfari Landskrona (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Henrik Larsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Landskrona í Svíþjóð en þetta var tilkynnt í dag.
Larsson, sem er 38 ára, lagði skóna á hilluna í október eftir farsælan feril þar sem að hann lék meðal annars með Feyenoord, Celtic, Barcelona og Manchester United.

,,Þetta tilboð er mikill heiður fyrir mig þar sem að ég hef ekki meiri reynslu en þetta af þjálfun,\" sagði Larsson á fréttamannafundi í dag.

,,Ég hlakka til að takast á við starfið og við munum sjá hvað ég get gert.\"

Landskrona leikur í næstefstu deild í Svíþjóð en liðið endaði í áttunda sæti á síðustu leiktíð.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.