15.01.05 - 15:05
Magnús Már Einarsson
Keller til Moenchengladbach (Staðfest)

Kasey Keller í baráttu við Ruud van Nistelrooy.


Kasey Keller í baráttu við Ruud van Nistelrooy.

Bandaríski landsliðsmarkvörðurinn Kasey Keller hefur gengið til liðs við Borussia Moenchengladbach frá Tottenham. Keller sem er 35 ára hefur lítið fengið að spila hjá Tottenham en Paul Robinson er þar aðalmarkvörður. Keller hafði meðal annars verið í láni hjá Southampton á leiktíðinni en nú hefur hann gert samning við Gladbach til ársins 2006.
Keller sem á 75 landsleiki að baki fyrir Bandaríkin sagði við heimasíðu Gladbach ,,Ég hlakka til þessa nýja kafla á ferlinum mínum. Bundesligan er ein af þremur stærstu deildunum í Evrópu, leikvangarnir eru alltaf fullir og fótbolti spilar stórt hlutverk í Þýskalandi."
