15.03.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ágúst Örlaugur og Björn Bergmann til Ørsta IL (Staðfest)

Ágúst Örlaugur og Björn Bergmann.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Ágúst Örlaugur Magnússon og Björn Bergmann Vilhjálmsson hafa gert eins árs samning við norska 4.deildarliðið Ørsta IL.
Í síðasta mánuði skoðuðu Ágúst og Björn aðstæður hjá Ørsta og núna hafa þeir samið við félagið.
Leikmennirnir héldu utan í fyrradag en þeir munu fara með liðinu í æfingaferð til Newcastle á Englandi.
Björn Bergmann, sem er 23 ára gamall, hefur leikið með Víði nánast allan sinn feril en hann skoraði þrjú mörk í fimmtán leikjum í annarri deildinni í fyrra.
Ágúst Örlaugur er ári yngri en hann lék með ÍA upp yngri flokkana og á að baki landsleiki með yngri landsliðunum. Hann gekk til liðs við Hamar fyrir síðustu leiktíð og var valinn besti leikmaður sumarsins hjá liðinu.