Fotbolti.net
15.03.09 - 16:53
Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Sóley Gunnarsdóttir lánuð til Djurgården (Staðfest)

Guðrún Sóley í leik með KR í Landsbankadeildinni í fyrrasumar.

Guðrún Sóley í leik með KR í Landsbankadeildinni í fyrrasumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir miðvörður KR og íslenska landsliðsins hefur verið lánuð til sænska félagsins Djurgården út tímabilið en þettta staðfesti hún í samtali við Fótbolta.net í dag.
Félagaskiptin hafa verði fyrirhuguð í nokkurn tíma en KR og Djurgården höfðu ekki rætt sín á milli fyrr en nýlega. Þau hafa nú komist að samkomulagi um að Guðrún Sóley fari að láni frá KR og búið er að undirrita alla pappíra þess efnis.

Áður en gengið var frá því skrifaði Guðrún Sóley undir nýjan samning við KR sem gildir út næsta ár. Hún heldur svo utan til Svíþjóðar á morgun og sænska deildin hefst svo eftir tvær vikur svo hún hefur smá tíma til að vinna sér sæti í liðinu.

Guðrún Sóley er annar Íslendingurinn sem gengur í raðir Djurgården í vetur því áður hafði Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörður landsliðsins farið til félagsins frá Val.

Guðrún Sóley er með gríðarlega mikla reynslu og hefur verið einn sterkasti leikmaður efstu deildar kvenna. Hún á fast sæti í miðri vörn íslenska landsliðsins sem leikur á Evrópumóti landsliða í Finnlandi í sumarsumar.

Hún er 27 ára gömul og er uppalin hjá KR þar sem hún hefur leikið allan sinn feril utan tveggja tímabila hjá Breiðablik 2006 og 2007. Hún lék alla 18 leiki KR í Landsbankadeildinni í fyrrasumar og skoraði í þeim tvö mörk auk þess sem hún lék tvo bikarleiki og skoraði eitt mark.

Sem fyrr sagði á hún fast sæti í íslenska landsliðinu og hefur leikið alla leiki liðsins undir stjórn Sigurðar Ragnar Eyjólfssonar núverandi landsliðsþjálfara. Hún hóf að leika með landsliðinu árið 1999 og síðan þá hefur hún samtals leikið 58 landsleiki og skorað í þeim eitt mark.

Rætt verður við Guðrúnu Sóleyju í viðtali hér á Fótbolta.net í fyrramálið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.