Fotbolti.net
15.03.12 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Hayden Mullins til Reading (Staðfest)

Hayden Mullins til Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur fengið miðjumanninn Hayden Mullins á láni frá Portsmouth út tímabilið.

Portsmouth á í miklum fjárhagsvandræðum þessa dagana og félagið fagnar því að geta losnað við Mullins af launaskrá.

Á dögunum fóru Erik Huseklepp og Liam Lawrence frá Portsmouth á láni og Mullins hefur nú fetað í fótspor þeirra.
Mullins, sem er 32 ára, getur einnig leikið í vörninni en hann var áður á mála hjá Crystal Palce og West Ham.

Mullins mun hjálpa Reading í síðustu tíu leikjum tímabilsins en liðið er í þriðja sæti í Championship deildarinnar og í mikilli baráttu um sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.