15.05.09 - 11:02
Magnús Már Einarsson
Dusan Ivkovic í Njarðvík (Staðfest)

Mynd: Guðmundur Karl

Mynd: Guðmundur Karl
Njarðvík hefur fengið gríðarlegan liðsstyrk fyrir komandi átök í annarari deildinni en liðið hefur samið við varnarmanninn Dusan Ivkovic.
Dusan hefur leikið hér á landi undanfarin þrjú ár, fyrst með KS/Leiftri árið 2006 og 2007 en í fyrra lék hann með Selfyssingum í fyrstu deildinni.
Dusan var valinn í lið ársins í annarri deildinni árið 2007 og í fyrra var hann einnig valinn í lið ársins í fyrstu deildinni þegar hann lék 21 leik með Selfyssingum og skoraði tvö mörk.
Njarðvíkingar sömdu við Dusan fyrir þónokkru síðan en tafir hafa orðið á frágangi á pappírum hans.
Dusan er hins vegar kominn með leikheimild núna með Njarðvíkingum en hann verður þó ekki með liðinu gegn KS/Leiftri í fyrstu umferðinni í annarri deildinni á morgun.
Aftur á móti ætti Dusan að geta leikið sinn fyrsta leik næstkomandi fimmtudag þegar að Njarðvík mætir Hvöt.

Heimild: Heimasíða Njarðvíkur