15.05.09 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Tomasz Luba og Vignir Benediktsson í Reyni (Staðfest)

Tomasz Luba.

Mynd: Heimasíða Reynis

Tomasz Luba.

Mynd: Heimasíða Reynis
Tomasz Luba, varnarmaður frá Póllandi, hefur gengið til liðs við Reyni Sandgerði.
Tomasz, sem er 23 ára, hefur leikið allan sinn feril í Póllandi en hann lék síðast með LKS Lomza í 2.deildinni þar í landi. Í vetur hefur Tomasz æft með Reyni en það hefur ekki gengið þrautalaust að fá félagaskipti fyrir hann.
Það tókst þó í dag, á lokadegi félagaskiptagluggans, eftir fjögurra mánaða viðræður við LKS Lomza
Reynismenn hafa einnig fengið varnarmanninn Vigni Benediktsson á láni frá Breiðablik.
Vignir er uppalinn Bliki en í fyrra var hann í láni hjá Njarðvík þar sem hann lék með liðinu í fyrstu deildinni.
Þá hefur Anton Ingi Sigurðsson yfirgefið Reyni eftir tveggja ára dvöl hjá félaginu en hann er farinn í ÍH/HV.