Fotbolti.net
15.05.09 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Magnús Már Lúðvíksson í Þrótt (Staðfest)

Magnús Már Lúðvíksson í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Magnús Már Lúðvíksson hefur gengið að nýju til liðs við Þrótt og mun hann leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.
Magnús Már hætti hjá Þrótti í vetur og gekk í raðir KR-inga. Hann lék með KR á undirbúningstímabilinu en núna hefur hann ákveðið að fara aftur til Þróttara.

Undanfarin þrjú ár hefur Magnús Már verið fastamaður hjá Þrótti og ekki misst af deildarleik hjá liðinu.

Síðastliðið sumar skoraði hann þrjú mörk í 22 leikjum í Landsbankadeildinni en Magnús, sem er 27 ára, getur leikið bæði á kantinum sem og í fremstu víglínu.

Áður en hann kom til Þróttar lék Magnús með liði ÍBV en hann hefur einnig leikið með Val hér á landi sem og uppeldisfélaginu KR.

Þróttur mætir einmitt KR á útivelli á sunnudaginn en Magnús Már gæti komið við sögu í þeim leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.