15.05.09 - 15:40
Magnús Már Einarsson
Ólafur V. Júlíusson í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ólafsvík hefur fengið miðju og sóknarmanninn Ólaf V. Júlíusson á láni frá HK.
Ólafur kom inn á sem varamaður í fyrstu umferð fyrstu deildar þegar að HK lagði ÍR en hann hefur nú ákveðið að söðla um og ganga í raðir Víkings.
Ólafur hefur leikið með HK stærstan hluta af sínum ferli en hann lék einnig með Fylki árið 2004.
Í fyrra lék Ólafur einnig hluta af sumrinu með Ými sem er varalið HK.
Víkingur Ólafsvík mætir Aftureldingu í annarri umferð fyrstu deildarinnar í kvöld en Ólafur fékk ekki félagaskipti í tæka tíð til að vera með í þeim leik.