Fotbolti.net
15.05.09 - 18:13
Magnús Már Einarsson

Jóhann Björnsson og Friðrik Dór í ÍR (Staðfest)

Jóhann Björnsson.

Jóhann Björnsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

ÍR hefur fengið varnarmanninn Jóhann Björnsson að nýju til liðs við sig frá HK.
Jóhann lék með ÍR í yngri flokkunum en fór í öðrum flokki í HK þar sem hann hefur verið undanfarin ár.

Í fyrra fór Jóhann á láni tl ÍR en kom ekkert við sögu og fór í kjölfarið í Ými þar sem hann lék nokkra leiki.

ÍR-ingar hafa einnig fengið Friðrik Dór Jónsson frá FH. Friðrik Dór er uppalinn FH-ingar en þessi tvítugi leikmaður lék nokkra leiki með liðinu í vetur.

Jóhann er kominn með leikheimild og getur því leikið með ÍR gegn Selfyssingum í kvöld en Friðrik Dór fékk ekki leikheimild í tæka tíð fyrir þann leik.

Þá hefur Róbert Óli Skúlason yfirgefið herbúðir ÍR-inga og gengið til liðs við ÍH/HV en hann lék 13 leiki í annarri deildinni í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.