Breiðablik vann sinn annan leik í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld er liðið mætti Þór/KA í þriðju umferð sumarsins.
Blikar töpuðu síðasta leik ansi óvænt 4-2 gegn ÍBV en svöruðu fyrir sig í dag gegn liðinu frá Akureyri.
Agla María Albertsdóttir átti afar góðan leik fyrir Breiðablik en hún skoraði fyrstu tvö mörk leiksins.
Á sama tíma áttust við Selfoss og Stjarnan og þar höfðu heimastúlkur frá Selfossi betur, 3-1.
Selfoss er með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar og hafa aðeins fengið á sig eitt mark.
Breiðablik 3 - 1 Þór/KA
1-0 Agla María Albertsdóttir ('31 )
2-0 Agla María Albertsdóttir ('50 )
2-1 Sandra Nabweteme ('55 )
3-1 Tiffany Janea Mc Carty ('61 )
Selfoss 3 - 1 Stjarnan
1-0 Anna María Friðgeirsdóttir ('32 )
1-1 Betsy Doon Hassett ('52 )
2-1 Unnur Dóra Bergsdóttir ('62 )
3-1 Hólmfríður Magnúsdóttir ('65 )
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir