Heimild: 101 Great Goals
Eflasut munu Liverpool menn aldrei gleyma 2018/19 tímabilinu þegar þeir unnu Meistaradeildina og náðu 97 stigum í deildinni.
Virgil Van Dijk var klárlega aðalmaðurinn þegar það kom að velgengni Liverpool á þessu tímabili.
Liverpool fékk á sig aðeins 22 mörk í 38 leikum í deildinni og var Van Dijk valinn leikmaður tímabilsins.
Hann skrifaði stutt skilaboð til Liverpool stuðningsmanna á Instagram.
„Núna hef ég fengið nokkra daga til að átta mig á því hversu ótrúleg tímabil þetta var, við afrekuðum frábæra hluti og ég er stoltur að vera hluti af Liverpool og af þessum hópi leikmanna, sagði van Dijk, „Að vera evrópumeistarar eru algjör draumur og við erum allir hungraðir í meira og ætlum okkur að gefa allt í ná því. Ég er einnig spenntur að halda áfram með landsliðinu. Takk fyrir aðislegan stuðning síðustu mánuði ég sé ykkur eftir hléið, tilbúinn í meira."
Athugasemdir