Fotbolti.net
15.07.08 - 09:20
Hafliði Breiðfjörð

Bryndís María Theodórsdóttir í Aftureldingu (Staðfest)

Gareth O\'Sullivan þjálfari Aftureldingar hefur verið duglegur að styrkja lið sitt.

Gareth O\'Sullivan þjálfari Aftureldingar hefur verið duglegur að styrkja lið sitt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Afturelding hefur fengið enn meiri liðsstyrk í kvennalið sitt því í dag var staðfest að Bryndís María Theodórsdóttir er fimmti leikmaðurinn sem gengur til liðs við félagið á nokkrum dögum.
Bryndís María sem er 21 árs gömul kemur frá Breiðablik þar sem hún hefur leikið nokkra leiki undanfarin ár, síðast tvo leiki í Landsbankadeildinni sumarið 2006.

Hún á að baki tvo leiki með U19 ára landsliði Íslands og sjö leiki með U17 ára liðinu.

Eins og áður sagði er hún fimmti leikmaðurin sem Afturelding fær til sín í félagaskiptaglugganum sem opnar í dag.

Áður hafði verið staðfest að Agnes Þóra Árnadóttir kom frá KR og þær Andrea Ýr Gústavsdóttir, Anna Garðarsdóttir og María Rós Arngrímsdóttir úr Val.

Afturelding hefur aftur á móti misst sinn sterkasta leikmann, bandarísku stúlkuna Sophia Mundy sem gekk í raðir Vals.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.