Fotbolti.net
15.07.08 - 10:47
Hafliði Breiðfjörð

Samaras til Celtic (Staðfest)

Samaras til Celtic (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Celtic í Skotlandi hefur gengið frá kaupum á Georgios Samaras frá Manchester City. Hann var síðari hluta síðustu leiktíðar á láni hjá Celtic og hafði lýst yfir áhuga á að vera áfram hjá liðinu.
Hann hefur nú komist að samkomulagi um þriggja ára samningi við félagið en kaupverðið hefur ekki verið gefið up.

Samaras sem er 23 ára gamall hafði komið til City frá Heerenveen á 6 milljónir punda í janúar 2006 en hefur ekki náð að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni.

Hann skoraði 12 mörk í 65 leikjum fyrir City áður en hann fór til Celtic á láni fyrr á árinu. Hann byrjaði aðeins fimm leiki hjá Celtic en skoraði þó sex mörk í öllum keppnum og getur spilað í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

,,Ég er virkilega ánægður með þessi skipti og tel að bæði félög séu mjög ánægð,\" sagði Samaras á vefsíðu Celtic. ,,Ég vildi vera áfram hérna, Celtic vildi halda mér hérna og báðir aðilar eru ánægðir með þessi félagaskipti.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.