Fotbolti.net
15.07.08 - 13:05
Magnús Már Einarsson

Guðjón Pétur Lýðsson í Álftanes (Staðfest)

Guðjón í leik með Stjörnunni í sumar.

Guðjón í leik með Stjörnunni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Álftanes úr þriðju deild hefur fengið miðjumanninn Guðjón Pétur Lýðsson frá Stjörnunni.
Guðjón hefur leikið sex leiki með Stjörnunni í sumar en þessi tvítugi leikmaður lék átta leiki í fyrstu deildinni með Garðabæjarliðinu í fyrra.

Sumarið 2006 lék Guðjón með Haukum og eftir stutta viðdvöl í Breiðablik gekk hann til liðs við Stjörnuna í fyrrasumar.

Álftanes hefur verið að styrkja lið sitt eftir að félagaskiptaglugginn opnaði á miðnætti en tveir aðrir leikmenn hafa komið til liðsins.

Andrés Már Logason og Haukur Ársælsson komu báðir frá ÍH en þeir fengu leikheimild í dag.

Kantmaðurinn ungi Jón Brynjar Jónsson er hins vegar farinn frá Álftanesi í Stjörnuna en hann er ennþá gjaldgengur í öðrum flokki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.