Fotbolti.net
15.07.08 - 16:37
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Mancini frá Roma til Inter (Staðfest)

Mancini frá Roma til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho hefur gert sín fyrstu kaup hjá Inter eftir að hann tók við stjórnartaumunum hjá félaginu
Mourinho hefur keypt kantmanninn Amantino Mancini frá Roma á um það bil tíu milljónir punda.

Þessi knái Brasilíumaður hefur gert fjögurra ára samning við Inter en hann verður væntanlega kynntur sem nýjasti leikmaður félagsins á morgun.

Þá hefur miðjumaðurinn ungi Francesco Bolzoni gert nýjan samning við Ítalíumeistarana í Inter.

Þessi nítján ára gamli leikmaður hefur framlengt samning sinn til ársins 2012.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.