15.07.08 - 18:24
Hafliði Breiðfjörð
Orlando Engelaar til Schalke (Staðfest)

Orlando Engelaar í leik með hollenska landsliðinu.

Mynd: Getty Images

Hollenski miðjumaðurinn Orlando Engelaar sem vakti mikla athygli með hollenska landsliðinu á Evrópumóti landsliða í sumar er genginn í raðir þýska liðsins Schalke frá Twente í Hollandi. Kaupverðið er talið 6 milljónir evra.
Engelaar sem er 28 ára gamall gerir þriggja ára samning við þýska félagið en þar hittir hann fyrir Fred Rutten sem þjálfaði hann áður hjá Twente.
,,Ég er hæstánægður með félagaskiptin. Orlando er verulega fjölhæfur og getur spilað í mörgum mismunandi stöðum,\" sagði Rutten en sjálfur tók hann við Schalke í sumar af Mirko Slomka.
Engelaar er fæddur í Rotterdam og byrjaði sem unglingur hjá Feyenoord en ferill hans í aðalliði hófst hjá NAC Breda þar sem hann var í fjögur ár þar til hann fór til KRC Genk í Belgíu árið 2004. Tveimur árum síðar fór hann til Twente.
Hann er 1,98 á hæð og hóf ferilinn sem framherji en hefur sannað sig betur á miðjunni og spilaði í þeirri stöðu á EM 2009 þar sem hann spilaði alla leiki Hollands.

Heimild: UEFA.com