Fotbolti.net
15.07.08 - 19:12
Magnús Már Einarsson

Marek Cech til WBA (Staðfest)

Marek Cech til WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur keypt vinstri bakvörðinn Marek Cech frá Porto á 1,4 milljónir punda.
Þessi 25 ára gamli Slóvaki hefur gert þriggja ára samning við WBA en liðið mætir Arsenal í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þann 16.ágúst.

Cech var hluti af liði Porto sem sigraði portúgölsku deildina á síðustu leiktíð.

Hann er nú farinn ásamt WBA í æfingaferð til Holland en liðið fer þaðan til Þýskalands.

Á ferli sínum hefur Cech leikið 29 landsleiki og skorað í þeim þrjú mörk.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.