Fotbolti.net
15.08.08 - 06:00
Davíð Örn Atlason
Ítalska deildin

Julio Baptista til Roma (Staðfest)

Baptista í leik gegn Roma á síðasta tímabili.

Baptista í leik gegn Roma á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski leikmaðurinn Julio Baptista er genginn í raðir Roma frá spænsku meisturunum í Real Madrid.
Í yfirlýsingu frá Roma segir að þessi 26 ára gamli framherji hafi kostað um níu milljónir evra og hafi skrifað undir fjögurra ára samning.

Roma, sem enduðu í öðru sæti í ítölsku deildinni á síðasta tíambili voru nálægt því að fá Adrian Mutu til liðs við sig, en það gekk ekki upp.

Það vantaði upp á breiddina hjá liðinu í fyrra þegar að Francesco Totti meiddist alvarlega á hné þá var Mirko Vucinic eini framherjinn til taks.

Roma, sem urðu bikarmeistarar á Ítaliú mæta Inter í ,,Super Cup\" eftir níu daga, en þar er einmitt Mancini, sem lék með Roma á síðasta tímabili.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.