Fotbolti.net
15.08.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Hull City gekk frá kaupum á Anthony Gardner (Staðfest)

Gardner lætur Heiðar Helguson finna til tevatnsins.

Gardner lætur Heiðar Helguson finna til tevatnsins.

Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur keypt varnarmanninn Anthony Gardner frá Tottenham á 2,5 milljónir punda.
Hull, sem leikur í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili, hefur aldrei borgað jafnháa upphæð fyrir einhvern leikmann.

Gardner, sem er 27 ára, kom til Hull á láni fyrr í sumar en félagið ákvað að ganga strax í að kaupa leikmanninn.

Gardner hefur skrifað undir þriggja ára samning við Hull og verður í leikmannahópi liðsins gegn Fulham á laugardag.

Undanfarið hafa forráðamenn Hull unnið að því að styrkja leikmannahópinn en í gær fékk félagið einnig framherjann Marlon King á láni frá Wigan.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.