Fotbolti.net
15.08.08 - 15:14
Magnús Már Einarsson

Claudio Pizarro til Werder Bremen á láni (Staðfest)

Claudio Pizarro til Werder Bremen á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Werder Bremen hefur fengið Claudio Pizarro framherja Chelsea á láni en samningurinn gildir í eitt ár.
Þessi 29 ára gamli leikmaður kom frítt til Chelsea frá Bayern Munchen síðastliðið sumar.

Hann náði sér hins vegar ekki á strik hjá Chelsea og skoraði einungis tvö mörk í 31 leik á síðustu leiktíð.

Í sumar hefur Pizarro verði orðaður við nokkur lið og Hull City reyndi meðal annars að fá hann.

Pizarro, sem er frá Perú, hefur hins vegar ákveðið að leika með Werder Bremen í vetur en hann lék tvö tímabil með liðinu áður en hann gekk í raðir Bayern Munchen árið 2001.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.