Fotbolti.net
15.09.08 - 10:17
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Thiago Motta til Genoa (Staðfest)

Thiago Motta til Genoa (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gunnar Jarl Jónsson

Genoa hefur gert fjögurra ára samning við brasilíska miðjumanninn Thiago Motta.
Motta hefur verið án félags síðan að hann yfirgaf Atletico Madrid í sumar.

Everton, Portsmouth, Juventus og AC Milan voru orðuð við þennan 26 ára gamla leikmann.

Motta hefur átt við meiðsli að stríða undanfarin tímabil en hann flaug í gegnum læknisskoðun hjá Genoa.

Hann horfði á 2-0 sigurleik liðsins gegn AC Milan í Serie í gær og í kjölfarið staðfesti Enrico Preziosi forseti félagsins að samningar hefðu náðst.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.