Fotbolti.net
15.09.08 - 21:30
Alexander Freyr Tamimi

Steve Clarke til West Ham (Staðfest)

Steve Clarke (t.h) hefur sagt skilið við Chelsea

Steve Clarke (t.h) hefur sagt skilið við Chelsea

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United hefur loks tryggt sér þjónustu Steve Clarke eftir að samningar náðust við Chelsea um að hann fengi að yfirgefa félagið.
Þessi fyrrum landsliðsmaður Skotlands batt því enda á 21 árs samstarf sitt við Chelsea og mun hann nú taka við sem þjálfari aðalliðsins á Upton Park.

Clarke sagði upp störfum sínum hjá Chelsea en þeir samþykktu ekki að leyfa honum að fara. Þeir náðu þó að semja við West Ham, en þeir síðarnefndu munu þurfa að borga ákveðnar miskabætur.

Framkvæmdastjóri West Ham, Scott Duxbury, viðurkenndi að liðið væri himinlifandi með að hafa tryggt sér þjónustu Clarke.

„Við erum mjög ánægðir með að geta boðið Steve Clarke velkominn til liðsins,“ sagði Duxburry á opinberri heimasíðu félagsins.

„Steve er að mörgum talinn einn besti þjálfari í Evrópu og reynsla hans og viska munu reynast okkur gríðarlega vel. Hann veit hvað við erum að reyna að byggja upp hjá West Ham og vill vera hluti af því.“

„Við höfum lagt á okkur mikla vinnu til að fá hann til liðsins og við erum vissir um að við séum nú komnir með hið fullkomna þjálfarateymi.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.