Fotbolti.net
15.09.20 - 06:00
Aksentije Milisic

Tottenham hefur áhuga á Bas Dost

Tottenham hefur áhuga á Bas Dost
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham er að fara leggja fram tilboð í Bas Dost, framherja Eintracht Frankfurt, samkvæmt enskum miðlum.
Jose Mourinho kvartaði yfir því hversu lítið leikmenn hans hlupu í leiknum gegn Everton og vill hann fá meiri vinnusemi.

Dost er duglegur framherji og vill Mourinho fá hann inn sem varaskeifu fyrir Harry Kane og til að hafa fleiri möguleika á bekknum.

Frankfurt vill fá 5,5 milljónir punda fyrir leikmanninn en liðið borgaði 6,5 milljónir punda fyrir hann í fyrra þegar hann kom frá Sporting Lissabon.

Þessi 31 árs gamli framherji skoraði 10 mörk í Þýskalandi í fyrra en þar á undan gerði hann 81 mark í 103 leikjum fyrir Sporting.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.