Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 15. september 2021 15:33
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Vestra og Vals: Sveinn í marki Vals - Kristinn Freyr og Sigurður Egill koma inn
8-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Jón Þór Hauksson er þjálfari Vestra.
Jón Þór Hauksson er þjálfari Vestra.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Sveinn Sigurður Jóhannesson.
Sveinn Sigurður Jóhannesson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
8-liða úrslit Mjólkurbikars karla fara fram í dag og í kvöld og verða allir leikirnir að sjálfsögðu í beinum textalýsingum hjá okkur.

Jón Ólafur Eiríksson er á Ísafirði og textalýsir leik Vestra og Vals sem hefst klukkan 16:30.

Sjá einnig:
Gunni giskar á 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins

Vestri er í sjötta sæti Lengjudeildarinnar en Íslandsmeistarar Vals eru dottnir niður í fimmta sæti Pepsi Max-deildarinnar. Mikið hefur verið rætt um versnandi gengi Valsmanna og jafnvel talað um að sæti Heimis Guðjónssonar sé farið að hitna.

Sveinn Sigurður Jóhannesson er í marki Vals en hann hefur verið að taka bikarleikina. Hannes Þór Halldórsson er á bekknum.

Kristinn Freyr Sigurðsson og Sigurður Egill Lárusson koma inn í byrjunarliðið frá 3-0 tapinu gegn Breiðabliki.

Byrjunarlið Vestra:
30. Brenton Muhammad (m)
4. Benedikt V. Warén
5. Chechu Meneses
6. Daniel Osafo-Badu
9. Pétur Bjarnason
10. Nacho Gil
11. Nicolaj Madsen
18. Martin Montipo
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
25. Aurelien Norest
55. Diogo Coelho

Byrjunarlið Vals:
25. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Johannes Vall
5. Birkir Heimisson
6. Sebastian Hedlund
7. Haukur Páll Sigurðsson (f)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
13. Rasmus Christiansen

Beinar textalýsingar:
16:30 Vestri - Valur
16:30 ÍR - ÍA
19:15 HK - Keflavík
19:15 Fylkir - Víkingur


Athugasemdir
banner
banner
banner